top of page

GOLFFERÐIR

Við hjá Lótusferðum sérhæfum okkur í að skipuleggja golfferðir sem henta jafnt einstaklingum sem og hópum. Hvort sem þú ert að leita að golfferð í bland við slökun og skoðunarferðir, eða golfferð þar sem einblínt eingöngu á golf, þá erum við með sérsniðnar lausnir sem tryggja að upplifunin þín verði ógleymanleg.

Sérsniðnar golfferðir

Engar tvær golfferðir eru eins – og við leggjum því metnað okkar í að hlusta á óskir þínar. Við aðstoðum við val á áfangastað, golfvöllum, gistingu og afþreyingu innan sem og utan vallar, svo ferðin verði í samræmi við óskir þínar.

Reynslan skiptir máli

Með áralanga reynslu í skipulagningu golfferða þekkjum við vel hvað skiptir máli. Við tryggjum að öll smáatriði séu í lagi – að ferðalagið, hótelið og þjónustan standist væntingar. Þannig getur þú einbeitt þér að því sem skiptir mestu máli: að njóta þess að spila golf í fallegu umhverfi og góðum félagskap.

Fyrir einstaklinga og hópa

Við bjóðum bæði upp á einstaklingsferðir þar sem þú ræður ferðinni sjálfur, og hópferðir þar sem við sjáum um skipulagið frá A til Ö. Hópferðir henta vel fyrir golfklúbba, vinahópa, félagasamtök eða vinnustaði sem vilja sameina frábæra golfferð og góða samveru.

bottom of page