top of page

SKÍÐAFERÐIR

Skíðaferðir til Ítalíu
Upplifðu ítölsku Alpa frá þeirra bestu hlið.
Ítalía er sannkölluð paradís fyrir skíðaáhugafólk – þar sem stórbrotin fjöll, frábær skíðasvæði, einstök gestrisni og matargerð á heimsmælikvarða fara saman. Í ítölsku Ölpunum bíður þín fjölbreytt úrval skíðasvæða, heillandi fjallaþorp og óviðjafnanleg stemning sem gerir skíðaferðina að upplifun sem þú gleymir ekki.
​

Fyrir alla hópa
Hvort sem þú ert að skipuleggja fjölskylduferð, vinahóp eða fyrirtækjaferð, eru ítölsku Alparnir frábær kostur. Hjá Lótusferðum sérsníðum við ferðina að þínum óskum og þörfum – hvort sem þú leitar að notalegri gistingu í fjallaþorpi eða glæsilegu hóteli með heilsulind og allri þeirri þjónustu sem þú vilt hafa í ferðinni.

Við sjáum um skipulagið – þú getur einbeitt þér að því að njóta ferðarinnar.


 

01_skipiste.jpg

ÍTALÍA - ÖRTISEI

Örtisei er lifandi miðbær með veitingastöðum, verslunum og notalegum kaffihúsum. Eftir dag á skíðum er dásamlegt að njóta heitra drykkja, góðs matar og hinnar einstöku fjallastemningar sem gerir Val Gardena að einu vinsælasta vetrarferðamannasvæði Evrópu.

14. TIL 21. FEBRÚAR 2027

bottom of page